Jón G Hauksson fékk til sín þá Jón Sigurðsson forstjóra stoðkerfafyrirtækisins Össur og Björn Zoega forstjóra Karólínska sjúkrahússins í Stokkhólmi í þáttinn Viðskipti á Hringbraut. Í þættinum fara þeir yfir stjórnun sjúkrahúsa, niðurskurðinn á Karólínska sjúkrahúsinu í Stokkhólmi, stoðkerfafyrirtækið Össur og helstu vörður á glæstum vegi þess.
Í upphafi þáttarins lítur Jón að venju við í Kauphöllina og skoðar gengi hlutabréfa og fjallar um áhugaverðar viðskiptafréttir síðustu daga.
Það hefur verið rautt mælaborð í kauphöllinni síðustu daga, úrvalsvísitalan hefur lækkað um 3,4 % frá því fyrir viku og er núna 2.269 stig. Ásdís Kristjánsdóttir forstöðumaður efnahagssviðs samtaka atvinnulífsins er á meðal níu umsækjanda um stöðu fjármálastöðugleikasviðs seðlabanka íslands.
Annað árið í röð eru Fjarðarkaup í Hafnarfirði það fyrirtæki sem Íslendingar mæla helst með samkvæmt nýrri könnun MMR. Mjólkurfyrirtækið Arna í Bolungarvík sem mælt var í fyrsta skipti í ár skaust beint í fimmta sæti listans.
Félag á vegum Ingibjargar Pálmadóttur bætti við sig í Skeljungi á mánudag en samtals eiga félög henni tengd núna um 11,3 % í skeljungi. Eiginmaður Ingibjargar, Jón Ásgeir Jóhannesson, er varaformaður Skeljungs.
Horfðu á þáttinn í heild sinni hér: