Siðanefnd forsetaembættisins skoðar nú hvort lánveitingar að jafnvirði næstum 50 milljarða króna til fasteignafyrirtæki Kushner fjölskyldunnar séu innan ramma laganna.
Til athugunar eru lán upp á samtals 500 milljónir dala sem Jared Kusner, tengdasonur og einn helsti ráðgjafi Trumps Bandaríkjaforseta, átti í viðræðum um við fjármálafyrirtækin Global Management og Citigroup.
Lögmaður Kusners, Abbe Lowell, þvertekur fyrir að Kusner taki þátt í starfsemi fjölskyldufyrirtækisins og segir hann ekkert hafa haft með þessi lán að gera.
En lögmaður Citigroup er sagður hafa sagt í bréfi til þingmanna að lánið hafi verið algerlega óviðeigandi og eins er Kushner sagður hafa rætt við einn stofnenda Global management um hugsanlegt starf fyrir hann í Hvíta húsinu áður en lánið var síðan veitt.