Viðskiptaþvinganir

Viðskiptaráð norðurslóða eru sjálfstæð samtök sem starfrækt hafa verið í þrjú ár.  Í þeim eru þátttakendur frá öllum átta norðurskautsríkjum. 

Á vettvangi þessara samtaka fer fram unmræða um viðskiptaþvinganir Vesturlanda gegn Rússlandi og umræða um viðskiptahindranir og fríverslun. 

Samtökin gagnrýna að viðskiptahindranir færast í aukana og nefna sem dæmi viðskiptaþvinganir Evrópusambandsins (ESB) og fleiri landa gegn Rússlandi.

Afnám viðskiptaþvingana gegn Rússlandi er nauðsynlegt að mati ráðsins til að stuðla að sjálfbærri þróun á norðuskautssvæðinu.

Nú er það svo að íbúar norðurslóða eru sárafáir.  Af því leiðir að skattgreiðendur eru fái.  Því geta íbúar norðurslóða ekki staðið undir uppbyggingu svæðisins. Laða þarf að erlenda fjárfesta.    

[email protected]