Hinn 6.júní var stofnað Japansk-íslenska viðskiptaráðið. Úlfar Steindórsson forstjóri Toyota samsteypunar á Íslandi er formaður ráðsins. Stofnfélög eru 30 íslensk fyrirtæki sem öll eiga í fjölbreyttum viðskiptum milli landanna tveggja.
Eitt helsta verkefni ráðsins er að efla tengsl fyrirtækja ásamt því að vera vettvangur skoðanaskipta. Starf ráðsins er vel til þess fallið að stuðla að nýjum viðskiptatækifærum og aukinni markaðsþekkingu.
Tvísköttunarmsamningur er í gildi milli Japans og Íslands og áhugi er á gerð fríverslunarsamnings og lofteferðasamnings svo fjótt sem auðið er.
rtá