Viðskiptajöfnuður aldrei hagstæðari

Erlend staða þjóðarbúsins hefur líklega aldrei verið hagstæðari. Eru Íslendingar því hreinir lánveitendur við útlönd um þessar mundir.

Viðskiptajöfnuður árið 2016 var mun hagstæðari en flestir höfðu gert ráð fyrir. Fjármagnsgjöld íslenskra aðila til erlendra aðila hafa dregist saman um sextíu og tvo milljarða milli ára.

Slíkt er að miklu leyti afleiðing af bættri skuldastöðu þjóðarbúsins. Má jafnvel færa rök fyrir því að þessi breyting hafi ekki síður átt þátt í styrkingu krónunnar síðustu mánuði fremur en fjölgun ferðamanna. 

Nánar www.arionbank.is