\"Við vorum upplýst um það í vikunni að Sigmundur Davíð hefur verið í útlöndum samtals 70 daga á árinu - og að minnsta kosti helminginn af þessum 70 dögum var hann í samstæðum skóm.\"
Þannig hóf Karl Ágúst Úlfsson inngang sinn í Helginni, sjónvarpsþætti sínum á Hringbraut þar sem vikan er gerð upp í góðra gesta hópi en skemmtikrafturinn Ari Eldjárn og söngkonan Guðrún Gunnarsdóttir voru gestir hans að þessu sinni - og má nærri geta að ein og ein hláturroka hafi farið um myndverið við upptöku þáttarins seint í gærdag.
\"Það mun hafa kostað íslenska ríkið um það bil 60 milljónir að senda Sigmund svona oft úr landi,\" hélt Karl Ágúst áfram: \"Mörgum þykir það býsna góður díll, því ef við umreiknum þetta myndi það ekki kosta nema um það bil 314 milljónir að hafa Sigmund erlendis allt árið.\"
Hann sat ekki á strák sínum. \"Og Ásdís Halla Bragadóttir sýndi svo ekki verður um villst að einkavæðing heilbrigðiskerfisins er löngu orðin tímabær þegar þessi eigandi einkahjúkrunarfyrirtækis keypti sér einbýlishús fyrir 250 milljónir króna. Nú hafa menn aðallega áhyggjur af því að fasteignaverð á Íslandi muni ´rjúka upp úr öllu valdi þegar íslenskir sjúklingar verða skilgreindir sem auðlind og eigendum heilbrigðisstofnanna verður úthlutað ákveðnum sjúklingakvóta.\"
Áfram hélt leikarinn góðkunni: \"Og svo var það auðvitað mál málanna; losun hafta. Þingmenn voru kallaðir saman klukkan tíu á sunnudagskvöld til að herða höftin svo það væri hægt að losa þau. Menn höfðu á orði að óvenjulegar aðstæður kölluðu á óvenjuleg vinnubrögð og enn og aftur voru þetta stærstu og merkilegustu aðgerðir íslandssögunnar að sögn ráðamanna. Kynningarfundur í Hörpu. Powerpoint dauðans. Í alvöru talað, þetta var svo mikill viðburður að hann á skilið alvöru treiler: Aldrei höfðu tveir menn lagt jafnmikið á sig fyrir jafnlitla þjóð í jafnmiklum vanda. Þeir vöktu frameftir á sunnudagskveldi. Þeir tóku sér í munn orð eins og sniðgönguhætta, nauðasamningsumleitanir og stöðugleikaskattprósenta. Orð, sem hefðu staðið þversum í tekjulægri mönnum. En óvenjulegir tímar kalla á óvenjulegt orðalag. Losun hafta - stórbrotinn léttir eins og öll önnur losun.
Látum þetta fljóta með í lokin: \"Og ritgerð sem skilað var við viðskiptafræðideild Háskóla Íslands reyndist vera uppspuni frá rótum. Fólk sem vitnað var í í ritgerðinni kannst ekki við neitt af vþeim upplýsingum sem það á að hafa gefið og hefur aldrei hitt höfund ritgerðarinnar. Þetta hefur vakið furðu miklu fjaðrafoki. Er fólk ekki farið að átta sig á því ennþá að viðskiptafræði er uppspuni frá rótum.\"
Hægt er að nálgast inngang Karls Ágústs í klippunum á hringbraut.is þar sem einnig er hægt að sjá þáttinn í heild sinni.