Viðreisnarafsprengi úr flokknum

Jón Gunnarsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, var meðal gesta í laugardagsþætti Þjóðbrautar í útvarpi Hringbrautar í gær. Þar kom fram að Jón er lítt hrifin af Viðreisn, málfutningi þess flokks og tilurð. „Viðreisnarafsprengi var stofnað út  úr Sjálfstæðisflokknum.“

Tveir aðrir talsmenn Sjálfstæðisflokksins, Páll Magnússon og Vilhjálmur Árnason, sem báðir eru þingmenn Suðurkjördæmis, sátu á Hrafnaþingi Ingva Hrafns Jónssonar, og andúð þeirra í garð Viðreisnar og þess fólks sem var kjörið á þing fyrir þann flokk leyndi sér ekki.

Eftir að Jón kallaði Viðreisn Viðreisnarafsprengi úr Sjálfstæðisflokki, í laugardagsþættinum, var hann spurður hvort hann væri lítt hrifinn af Viðreisn.

„Já, ég gef lítið fyrir þetta og enn minna fyrir málflutning þeirra, enn minna. Ef horft er á þetta með köldu mati þá er enginn munur á málfutningi þeirra og okkar, í mjög stórum málum, nema hvað varðar Evrópusambandið. Þar greinir okkur á. Það mál varð hvatinn að því að þetta fólk fór upphaflega út úr Sjálfstæðisflokknum og stofnaði þennan flokk.“

En ekki er samhljómur, til að mynda  í sjávarútvegi?

„Reynt er að tjalda einhverju til, sem eru breytingar í sjávarútvegi, en þar er samhljómur milli þess sem þau segja og þeirra kerfisbreytinga sem ég hef lagt til innan Sjálfstæðisflokksins. Í landbúnaði er endurskoðun hafin, sú mesta hefur verið framkvæmd í áratugi. Enginn þessara flokka hefur lagt til, ekki í mín eyru, nýtt fullfrágengið landbúnaðarkerfi. Allir eru á því að þarf að fara fram mjög ítarleg vinna til aðlaga okkur inn í framtíðina. Við höfum sett þetta allt í gang.“

Jón er greinilega lítt hrifinn. Hann hélt áfram.

„Ég heyrði Þorgerði Katrínu eða Þorstein Pálsson aldrei, þegar þau voru formaður eða varaformaður Sjálfstæðisflokksins, tala fyrir þessum kerfisbreytingum innan flokksins. Ég spyr, af hverju stóð þetta fólk ekki við bakið á mér, og fleirum innan Sjálfstæðisflokksins, sem vilja tala fyrir þannig breytingum.“

Jón segir Viðreisn hafa eina sérstöðu frá Sjálfstæðisflokki.

„Það er bara þetta Evrópusamband og þau hanga í því. Það mál er ekki einu sinni á dagskrá. Það er óframkvæmanlegt.“ 

-sme