Viðreisn vill mynda ríkisstjórn

Hanna Katín Friðriksson, nýkjörinn þingmaður Viðreisnar, segir eðlilegast að Benedikt Jóhannesson, formaður Viðreisnar, fái umboð frá forseta Íslands, til stjórnarmyndunar. Þetta sagði hún í Þjóðbraut í morgun, en þátturinn var í beinni útsendingu, bæði í útvarpi og sjónvarpi.

Birgir Ármannsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, sem náði endurkjöri í kosningunum er á annarri skoðun. Hann segir ljóst að Sjálfstæðisflokkurinn sé sigurvegari kosninganna og því beri að fela Bjarna Benediktssyni, formann hans, umboð til sjórnarmyndunar.

Hanna Katrín segir Viðreisn vera mestan sigurvegara kosninganna.