Viðreisn hefur samþykkt einróma ályktun á Milliþingi flokksins sem haldið er í dag. Hún inniheldur meðal annars þann vilja flokksins að ganga í Evrópusambandið. Telur flokkurinn að farsæl framtíð þjóðarinnar verði best tryggð með þeim hætti.
Ályktunin er svohljóðandi í heild sinni:
Hjartað slær með Evrópu: Stjórnmálaályktun Viðreisnar
Viðreisn vill skapa framúrskarandi lífskjör hér á landi. Tækifærin til þess eru mörg. Á Íslandi er gnægð auðlinda, þjóðin er vel menntuð og í fararbroddi í jafnréttismálum.
Ódýrara Ísland – forsenda farsælla kjarasamninga
Farsæl niðurstaða í yfirstandandi kjaraviðræðum er brýn. Krónan hefur valdið fólki og fyrirtækjum miklu tjóni. Hátt vaxtastig er fylgifiskur krónunnar og skortur á samkeppni og miklar innflutningshindranir leiða af sér mun hærra matvælaverð en ella. Íslensk heimili geta sparað tugi þúsunda í mánaðarútgjöldum með lægra vöxtum og lægra matvælaverði. Það er besta og varanlegasta kjarabótin sem við getum öll sameinast um. Viðreisn vill lækka skatta, einfalda þá og samræma. Nauðsynlegt er að ætíð sé gætt fyllsta aðhalds í rekstri hins opinbera, regluverk ekki óþarflega íþyngjandi og stjórnsýsla vönduð.
Nánar á
https://eyjan.dv.is/eyjan/2019/03/02/ny-alyktun-vidreisn-vill-ganga-esb/