Viðreisn vill ekki banna verðtryggingu

Þorsteinn Víglundsson, væntanlegur frambjóðandi Viðreisnar í Reykjavík, svaraði spurningu um afnám verðtryggingar á Fundi fólksins, á þá leið að Viðreisn sé ekki þeirrar skoðunar að rétt sé að banna eitt lánsform.

Þorsteinn var spurður um þetta og hann sagði enga lausn felast í að banna eitt lánsform. Vandinn sé ekki þar, heldur í háum vöxtum og þar sé verk að vinna. Viðreisn vill að kosið verði um framhald viðræðna við Evrópusambandið með það markmið að evran verði gjaldmiðill Íslands.