Viðreisn truflar bjarna ekki neitt

Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðisflokksins, sagðist aðspurður, í viðtali við Ingva Hrafn Jónsson á ÍNN, að framboð Viðreisnar trufli sig ekki neitt. Hann sagði innan við fjórðung kjósenda lýsi yfir stuðningi við þá flokka sem aðhyllast aðild að Evrópusambandinu. Hann nefndi Samfylkinguna, Viðreisn og; „...það sem eftir er að Bjartri framtíð.“

Bjarni vék sér undan umræðu um loforð hans fyrir síðustu kosningar að þjóðin fengi að kjósa um framhald viðræðna við Evrópusambandið.

Bjarni upplýsti einnig að hann á í engum samskiptum lengur við Sigmund Davíð Gunnlaugsson eftir að hann lét af embætti forsætisráðherra. Þeir hittast ekki né tala saman í síma.

„Við Sjálfstæðismenn eru ekki ánægðir með þá stöðu sem flokkurinn er í,“ sagði Bjarni og sagði flokkurinn eigi meira fylgi inni.