Viðreisn ræður úrslitum

Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, oddviti Viðreisnar, segir að formlegar meirihlutaviðræður séu ekki hafnar í borginni en að óhætt sé að segja að þreifingar séu byrjaðar.

Þetta kemur fram á vefsíðu Rúv.

Mjög ólíklegt er að meirihluti verði myndaður án Viðreisnar. Þórdís telur að málin fari að skýrast á næstu dögum. Þórdís Lóa segist tilbúin til að vinna með öllum. Viðreisn muni ganga til samninga á grundvelli málefnasamnings.

Eyþór Arnalds, oddviti Sjálfsæðismanna gerir kröfu um borgarstjóraembættið. Í Silfrinu sagði hann að hefðin væri sú að stærsti flokkurinn í borginni leiði aðra til samstarfs.

Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri og oddviti Samfylkingarinnar hefur hins vegar útilokað meirihlutasamstarf við Sjálfstæðisflokkinn. „Ég held að það sé klárt að til dæmis meginlínurnar í aðalskipulaginu og þær áherslur hafa meirihlutastuðning í nýrri borgarstjórn og þetta eru meðal stóru málanna á næsta kjörtímabili,“ sagði Dagur í Silfrinu í gær, sunndag eftir kosningadag. 

Því verða tvær blokkir um myndun meirihluta. Flokkar með eða án Sjálfstæðisflokksins.