Kosningasjónvarp stjórnmálaflokkanna er hafið á Hringbraut og í kvöld kl.22 verður á dagskrá þáttur Viðreisnar: Nýr, frjálslyndur stjórnmálaflokkur. Umsjónarmenn þáttarins eru Birna Hafstein og Bjarni Halldór Janusson. Birna Hafstein þáttastýrir og eru gestir kvöldsins Þorsteinn Víglundsson, oddviti Viðreisnar í Reykjavík Norður og Ásgeir Jónsson, dósent í hagfræði við Háskóla Íslands. Umræðan eru helstu áherslur og atriði í efnhahagsmálum og þá ekki síst umræða um hina svokölluðu myntráðsleið sem Viðreisn hefur kynnt.
Þátturinn verður endursýndur í sólahring og aftur um helgina, en Viðreisn er einn þeirra stjórnmálaflokka sem verður með vikulegan þátt á Hringbraut fram að kosningum. Í þáttunum mun Viðreisn kynna sín helstu stefnumál og ræða allt það sem flokkurinn telur mestu máli skipta í þjóðfélaginu.