Viðreisn er að leggja í fundaferð um landið undir yfirskriftinni Verbúðin Ísland.
Eins og yfirskriftin gefur til kynna verða sjávarútvegsmálin í deiglunni og ekki síst kvótakerfið sem engin sátt er um í landinu.
Fáir deila um að nauðsynlegt er að takmarka aðgang að fiskinum í sjónum, enda er hann takmörkuð auðlind – takmörkuð auðlind allrar þjóðarinnar. Ágreiningurinn snýst um að stjórnvöld gefa ákveðnum hópi fyrirtækja aðgang að auðlindinni fyrir táknrænt gjald.
Viðreisn og fleiri telja óeðlilegt að úthluta aðgangi að gífurlegum verðmætum nær endurgjaldslaust.
Í samtali við Hringbraut sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, mikilvægt að þjóðin fengi meiri gjöld fyrir þjóðarauðlindina. Hún telur hugmynd Sigurðar Inga Jóhannssonar, innviðaráðherra og formanns Framsóknarflokksins, um skattheimtu af ofurgróða útgerðarinnar misráðna.
„Þetta á að vera gjaldtaka, ekki skattheimta. Gjaldtaka vegna þess að þarna er verið að greiða fyrir aðgang að verðmætum, ekki skattleggja rekstur. Ýmsar leiðir eru til að finna hvert umfang gjaldheimtunnar á að vera. Markaðurinn býður upp á góðar lausnir í þeim efnum,“ sagði Þorgerður.
Fyrsti fundurinn er í Kænunni í Hafnarfirði kl. 20:00 á mánudagskvöldið. Þar ræða Þorgerður Katrín, Daði Már Kristófersson og Þorsteinn Pálsson við fundargesti.
Á þriðjudagskvöldið mæta þau Þorgerður Katrín, Daði Már og Þorsteinn í Kiwanishúsið við Óseyrarbraut í Þorlákshöfn kl. 20:00 Í hópinn bætist Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar í Suðurkjördæmi.
Miðvikudaginn 6. apríl verður Hótel Aldan á Seyðisfirði fundarstaður. Fundurinn hefst kl. 17:30 og það verða Þorgerður Katrín,l Hanna Katrín Friðriksson, þingflokksformaður Viðreisnar, og Þorsteinn Pálsson sem ræða við fundargesti.
Síðasti fundurinn verður á Bryggjunni á Akureyri á fimmtudaginn og hefst hann kl. 17:00. Af hálfu Viðreisnar tala þar Þorgerður Katrín, Daði Már, Hanna Katrín og Benedikt Jóhannesson, stofnandi og fyrsti formaður flokksins.