Viðreisn ólíklega til liðs við ríkisstjórnina

Þorsteinn Víglundsson, fyrrum framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins og þingframbjóðandi á vegum Viðreisnar, segir ólíklegt að Viðreisn muni verða þriðja hjólið undir vagni núverandi ríkisstjórnar, að loknum kosningunum 29. október.

Á þá leið svaraði hann spurningu sem að honum var beint á Fundi fólksins í gærdag.

Þorsteinn sagði Viðreisn vilja breytingar, breytingar í landbúnaði, sjávarútvegi og víðar, breytingar sem hann sjái ekki að nýverandi stjórnarflokkar vilji standa að og þess vegna sé ólíklegt að Viðreisn geti unnið með Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, að óbreyttu.

Viðreisn leggur áherslu á að þjóðin segi sem fyrst hug sinn um hvort halda eigi áfram viðræðum við Evrópusambandið eða ekki. Þorsteinn segir þjóðarinnar að ákveða það, en Viðreisn mun tala fyrir áframhaldi viðræðnanna.