Viðreisn á í viðræðum við nokkra stjórnmálaflokka um mögulegt samstarf í nokkrum sveutarfél0gum landsins fyrir komandi sveitarstjórnarkosningar að því er fram kemur í Morgunblaðinu í dag.
Þar staðfestir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður flokksins að Viðreisn eigi nú samtal við nokkra flokka, en engin ákvörðun um samstarf hafi enn verið tekin.
Samkvæmt heimildum blaðsins er um að ræða Vinstri græn, Samfylkingu og Framsóknarflokk, auk Bjartrar framtíðar.
Þrátt fyrir þetta er ekki talið líklegt að Viðreisn og BF bjóði fram sameiginlegan lista í Reykjavík.