Viðreisn í lykilstöðu í borginni

Afstaða Sjálfstæðismanna til m.a. borgarlínu og flugvallar takmarka möguleika þeirra til samstarfs, skrifar fréttamaðurinn Höskuldur Kári Schram

Þannig geti Sjálfstæðismenn einungis unnið með Vigdísi Hauksdóttur í Miðflokknum og fulltrúa Flokks fólksins, Kolbrúnu Baldursdóttur. Þannig samtals með 10 fulltrúa af 23 sem verða nú í borgarstjórn.  

Vinstri græn, Samfylking og Píratar hafi hafnað samstarfi til hægri. Saman eru þau með 9 fulltrúa.

Höskuldur skrifar áfram: „Með samstarfi til hægri þyrfti Viðreisn að bakka með ansi mörg stór stefnumál. Svo ekki sé talað um að Viðreisn fari í samstarf með fyrrverandi formanni Heimssýnar. Það eitt og sér væri mjög merkilegt. Nái Eyþór að mynda slíkan meirihluta væri það meiriháttar pólítískt afrek en að sama skapi nánast pólitískt sjálfsmorð fyrir Viðreisn. Staða Viðreisnar er því kannski ekki eins sterk og fyrirfram myndi ætla. Líklegast að P,S,V og C myndi meirihluta en margt getur gerst í pólitík“.

Eyþór Arn­alds var kjörinn í stjórn Heims­sýnar, hreyf­ingar sjálf­stæðissinna í Evr­ópu­mál­um í fyrra. Heimsýn telur hagsmunum Íslendinga best borgið með því að halda áfram að vera sjálfstæð þjóð utan Evrópusambandsins.