Viðreisn hefur sannfæringu

Viðreisn mun undir forystu Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur formanns einsetja sér að halda uppi málefnalegri stjórnarandstöðu en styðja góð málefni og fylgja sinni sannfæringu. 

Þetta sagði Þorgerður Katrín á Alþingi í gærkvöld. 

Á næsta ári verður efnt til landsþings Viðreisnar og þá er líklegt að Þorgerður Katrín gefi kost á sér í embætti formanns Viðreisnar og líkast til kynnir Viðreisn málefnakrá flokksins fyrir sveitarstjórnarkosningarnar 2018.

Á þingi í gærkvöld sagði Þorgerður Katrín þetta. 

\"Viðreisn mun taka afstöðu með frelsinu gegn forræðishyggju.  Við veljum alþjóðasamstarf gegn einangrunahyggju.  Við viljum ábyrga fjármálastjórn sem sendir ekki reikninginn inn í framtíðina.  Við segjum frjálsyndi í stað íhaldssemi.  Við verðum hávær.  Ef skerða á frelsi einstaklingsins.  Og stöndum alltaf vaktina með almannahagsmunum gegn sérhagsmunum.\"

[email protected]