Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, væntanlegur frambjóðandi Viðreisnar, segir flokkinn vera miðjuflokk. Hún færir rök fyrir þeirri skoðun í þættinum í kvöld.
Þorgerður Katrín segist frekar álíta að Sjálfstæðisflokkurinn hafi fjarlægst eigin skoðanir, frekar en að hún hafi gert það. Þorgerður Katrín segir Sjáflstæðisflokkinn ekki nógu frjálsan flokk og því sé Viðreisn þörf viðbót.
Þorgerður Katrín er í ítarlegu viðtali í kvöld sem hefst skömmu fyrir hálf tíu í kvöld.