Viðreisn bjargar ekki ríkisstjórninni

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, sagði í Þjóðbraut í kvöld, að Viðreisn sé ólíkleg til að ganga til liðs við núverandi stjórnarflokka að loknum kosningum. Til að svo verði þurfa stjórnarflokkarnir, Sjálfstæðisflokkur og Framsóknarflokkur, að breyta stefnum sínum nokkuð.

Eins kom fram í viðtali við Þorgerði Katrínu að vilji þjóðin ekki halda áfram viðræðum við Evrópusambandið, eða felli samning þegar þar að kemur, verði að finna aðra lausn á gjaldmiðilsmálum okkar Íslendingar.

Þorgerður Katrín sagði um sinn gamla flokk að hann sé íhaldsflokkur sem sé tregur til breytingar, öfugt við Viðreisn.