Guðmundur Hálfdanarson sagði í morgun á Þjóðbraut að hann teldi sögulega séð sé fylgi Framsóknar ekki óeðlilegt þótt það sé langt í frá því sem það var í síðustu kosningum. Fylgið hafi verið fyrir flokkinn, ef litið er eftir til fleiri kosninga, á því róli sem það er á núna 11,5 prósent.
Hann telur helst að stjórnarsamstarf á með Sjálfstæðisflokki og Vinstri grænum sé útilokað en deginum ljósara sé að Viðreisn sé í oddastöðu í ríkissstjórnarmyndun. Þeir hafi ekki útilokað neitt þótt þeir hafi hafnað því í kosningabaráttunni að vera “þriðja hjólið” með Sjálfstæðisflokknum og Framsókn.
Stóru tíðindin séu hrun Samfylkinginarinnar sem sé eini flokkurinn sem skilgreini sig sem jafnaðarmannaflokk. Hann sé núna orðinn dreifbýlisflokkur sem virki sérkennilega. Þrír þingmenn sem náðu kjöri var formaðurinn Oddný G. Harðardóttir í Suðurkjördæmi, Logi Már Einarsson, varaformaður í Norðaustur og Guðjón S. Brjánsson í Norðvestur.