Viðræðuslit án aðkomu alþingis

Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra hefur tilkynnt ráðamönnum hjá Evrópusambandinu að samningaviðræðum Íslendinga um aðild að sambandinu sé formlega lokið. Gunnar Bragi, sem staddur er á fundi evrópskra ráðamanna á meginlandinu segir að ríkisstjórnin líti svo á að Ísland sé ekki lengur í hópi umsóknarríkja og þess vegna hafi hann farið þess á leit með tilynningu sinni í dag að sambandið tæki mið af því hér eftir. "Við teljum að þessu máli sé lokið og ef menn vilja sækja um að nýju þá verði að leita til þjóðarinnar," sagði hann við RÚV fyrr í kvöld.


Af þessu má ljóst vera að Gunnar Bragi Sveinsson utanríksiráðherra hefur skipt um skoðun hvað varðar framlagningu málsins á Alþingi. Hann hefur margsinnis boðað á fyrri stigum málsins að þingsályktunartillögu um slit viðræðna væri að vænta. Hann sagðist hins vegar í dag ekki sjá ástæðu til að Alþingi, sem samþykkti viðræður á sínum tíma, hefði aðkomu að málinu nú; valdið væri hjá framkvæmdavaldinu.