Viðræður standa enn

Ekkert samkomulag er enn á milli breska Íhaldsflokksins og Lýðræðislega sambandsflokksins (DUP) um ríkisstjórnarsamstarf. Einhver á skrifstofu Theresa May forsætisráðherra hljóp á sig að sendu út fréttatilkynningu um að samkomulag væri frágengið. Svo var ekki fyrir stundu.

Það eina sem Lýðræðislegi sambandsflokkurinn (DPU) býður Íhaldsflokknum er að verja minnihlutarstjórn Theresa May vantrausti í neðri málstofu breska þingsins og að greiða atkvæði með stefnuræðu ríkisstjórnarinnar sem Elísabet II drottning flytur við næstu þingsetningu. Þá heitir DPU því að tryggja að fjárlög verði samþykkt. Annað er ekki í boði hjá Lýðræðislega sambandsflokknum.  Eins og fyrr segir er en þá ekkert samkomulag.  

rtá