Viðræðum lokið og verkfall hefst á ný á miðnætti

Viðræður milli Eflingar, Samtaka atvinnulífsins og ríkissáttasemjara er lokið en ekki tókst að semja um nýjan kjarasamning fyrir félagsmenn Eflingar.

Þetta staðfestu Halldór Benjamin Þorbergsson og Ástráður Haraldssonar í samtali við fjölmiðla í Karphúsinu í dag.

Viðræður hafa staðið yfir undanfarna daga eftir að samþykkt náðist um verkfallsfrestun í vikunni en nú er ljóst að verkfall hefst á ný á miðnætti.