Viðræðum ekki lokið

 Viðræður halda í dag áfram hjá fulltrúum Samfylkingarinnar, Pírata, Viðreisnar og VG til að mynda meirihluta í borgarstjórn en engar viðræður urðu um helgina, segir visir.is og að í Kópavogi sé útlit fyrir að Sjálfstæðismenn og Framsóknarflokkurinn hefja meirihlutaviðræður. Skoðanamunur hefur verið uppi meðal bæjarfulltrúa Sjálfstæðisflokksins þar sem hafði lýst því yfir að honum hugnaðist áframhaldandi samstarf við

Þrír aðrir bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins vilja ekki samstarf við Theodóru Þorsteinsdóttur, sem var bæjarfulltrúi fyrir Bjarta framtíð og var oddviti sameiginlegs lista Bjartrar framtíðar og Viðreisnar. Oddvitinn og bæjarstjórinn Ármann Kr. Ólafsson var hins vegar hlynntur samstarfi við Theodóru.