"Viðtökurnar hafa verið framar vonum og okkur finnst við mæta hlýju og velvild um allt samfélagið," segir Sigmundur Ernir Rúnarsson dagskrárstjóri Hringbrautar en sjónvarpstöðin varð tveggja mánaða gömul síðastliðinn laugardag. Í vikunni sem þá var að ljúka var frumsýnt efni stöðvarinnar tvöfaldað frá því sem var í byrjun útsendinganna í febrúar. "Nú býður Hringbraut upp á nýtt íslensk efni í tvo tíma á dag frá 20.00 til 22.00, alls 14 þætti sem stjórnað er af jafn mörgum konum og körlum," bendir dagskrárstjórinn á "og þannig viljum við hafa það á okkar litlu vinalegu sjónvarpsstöð sem ætlar sér fremur að vanda sig en gera stóra hluti."
Meðal nýrra þáttastjórnenda sem hófu störf á Hringbraut í síðustu viku má nefna Sirrý, Sigríði Arnardóttur fjölmiðlakonu til fjölmargra ára (sjá mynd) og Þórdísi Lóu Þórhallsdóttur formann Félags kvenna í atvinnulífinu.
Megingildi Hringbrautar eru mannvirðing, umburðarlyndi og jafnrétti og í því ljósi er nákvæmt kynjabókhald haldið um viðmælendur stöðvarinnar sem birt er mánaðarlega á hringbraut.is. Staðan eftir tvo mánuði er þessi: Alls hafa 221 viðmælandi birst í þáttum stöðvarinnar á þessum tímabili, þar af 114 karlar og 107 konur. "Með þessu móti viljum við spegla samfélagið eins og það er - og svona kynjabókhald veitir okkur mikið og gott aðhald," segir Sigmundur Ernir. "Nú er ljóst að við þurfum að spýta í lófana og fjölga kvenviðmælendum á kostnað karla - og það verður gert," segir dagskrárstjórinn.
Niðurstöður kynjabókhaldsins verða næst birtar 18. maí.