Ólgan á vinnumarkaði er helsta váin í íslensku efnahagslífi um þessar mundir. Ef ekki kemur til sáttar í þessum deilum mun niðurstaðan vera óhagfelld fyrir alla aðila. Verðbólga, veikara gengi og minni hagvöxtur rýrir lífsgæði allra.
Þetta segir í tilkynningu frá Viðskiptaráði Íslands sem það sendi frá sér í morgun, en talsmenn ráðsins hafa rýnt í afleiðingar þeirra mikla launahækkana innan opinbera og almenna geirans sem virðast vera í farvatninu: "Brýnt er að aðilar á vinnumarkaði missi ekki sjónar á því að hagfelld skilyrði fyrir aukinni verðmætasköpun eru eina leiðin til að bæta kjör launþega til lengri tíma litið," segir í tilkynningu ráðsins sem bendir jafnframt á eftirfarandi:
- "Umframlaunahækkanir opinberra starfsmanna í takt við núverandi kröfur myndi leiða til 50 ma. kr. árlegum halla í opinberum rekstri.
- Svigrúm til krónutöluhækkunar nemur fyrst á litið um 65.000 kr. á mánuði yfir næstu þrjú ár. Slík hækkun myndi hins vegar leiða til ríflegra prósentuhækkana allra hópa.
- Ríflegar prósentuhækkanir myndu þurrka út ávöxtun eigin fjár íslenskra fyrirtækja ef þau bregðast ekki við með verðhækkunum eða uppsögnum.
- Hækkun vaxta kemur verst við tekjulága þar sem vaxtabyrði þeirra er þyngri en annarra."
Viðskiptaráð hefur áður bent á að aukin framleiðni, samkeppnishæfni og stöðugleiki sé forsenda kjarabóta á Íslandi ásamt friði á vinnumarkaði.