Víðir svarar geimskipagríni Gylfa Þórs

Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumann farsóttarhúsanna slær á létta strengi og birtir ímyndaða mynd þar sem Víðir Reynisson ræðir við Boga Ágústsson í beinni útsendingu í mars 2022 um rétt viðbrögð við komu geimskips – Í texta með útsendingunni er haft eftir Víði: - Biðjum bara fólk að halda sig innandyra og alls ekki kasta eggjum upp í loft í átt að skipinu. Við vinnum þetta saman.

Gylfi Þór Þorsteinsson, forstöðumann farsóttarhúsanna spyr Víði út í framtíðina
Skjáskot af Facebook

Víðir er snöggur að sanna að slík áhættugreining sé til og birtir myn af í möppu frá árinu 2018 merkt: „Loftsteinar – Geimskip" – „Áhættugreining – Eðli hættu".

Mynd af aðgerðarmöppum Víðis ef geimskip skyldi koma
Skjáskot

Gylfi Þór fær margvísleg viðbrögð og margir vilja hjálpa til þegar þar að kemur: „þetta er ekki flókið Sóttvarnarhús fyrir Geimverur! Sign me í það job,“ skrifar starfsmaður Rauða krossins og Gylfi sjálfur skrifar til Víðis. „enda ekki við öðru að búast . Þú bara hóar ef þig vantar eitthvað“. Enn einn skrifar“ Takk fæ að senda á mitt fólk þannig hægt sé að setja upp sviðsmyndir!“