Víðir Reynisson, yfirlögregluþjónn Almannavarna, spáir á því að íslenska karlalandsliðið í knattspyrnu beri sigur úr býtum gegn Ungverjum með einu marki gegn engu.
Greint er frá þessu á vef RÚV.
Þar segir einnig að Víðir hvetji landsmenn til að virða sóttvarnartilmæli og samkomutakmarkanir. Sérstaklega þar sem nú hafi borist jákvæðar fréttir af bóluefnatilraunum og fækkun COVID-19 smita sé hætt við að fólk gleymi sér en það verði áfram að vera meðvitað um þær reglur sem í gildi eru.