Víðir eina búðin sem lækkar matarverð

Vörukarfa ASÍ hefur hækkað í verði hjá 11 verslunarkeðjum af 12 frá því í byrjun júní fram í september. Mesta hækkunin á þessu tímabili er hjá Krónunni, Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga,  en karfan lækkaði aðeins í verði hjá Víði. 

Á tímabilinu má sjá hækkanir í öllum vöruflokkum en áberandi eru hækkanir á mjólkurvörum sem hækka um 3 til 5% í flestum verslunum.

Mesta verðhækkunin á körfunni var 3,2% hjá Krónunni, um 2,4% hjá Bónus og Kaupfélagi Skagfirðinga, 1,9% hjá Kaupfélagi Vestur Húnvetninga, 1,3-1,7% hjá Nettó, Iceland, Hagkaupum, Samkaupum-Úrvali, Samkaupum-Strax og Kjarval og um 0,9% hjá 10/11.

Verð körfunnar hefur á sama tímabili lækkað um 2,4% hjá Víði og er mesta lækkunin hjá þeirri verslun í vöruflokknum grænmeti og ávextir sem hefur lækkað í verði um 11,3%.