Súrefni - þáttaröð um umhverfisvernd hefur göngu sína á Hringbraut í kvöld.
Aldrei fyrr hefur vitund íslenskra borgara verið meiri um umhverfisvernd. Við hittum fólk sem leggur sitt af mörkum til verndar náttúrunni, heimsækjum sveitarfélög og fyrirtæki sem hafa fundið lausnir til umhverfisverndar.
Alla mánudaga munu Linda Blöndal og Pétur Einarsson ræða við bæði fræðimenn og leikmenn um umhverfisvernd.
Við beinum sjónum okkar að loftinu, hafinu og vernd alls þess sem er okkur lífsnauðsynlegt til að lifa áfram hér á jörðinni með öðrum íbúum hennar.
Í fyrsta þættinum ræðum við m.a. viðhorfsbreytingu til umhverfismála við Guðmund Inga Guðbrandsson ráðherra, Fríður Freyja er einn ötulasti plokkari landsins og fær Pétur til að sjá ljósið í umhverfisverndinni og ábyrgð hvers og eins í að vernda náttúruna. Einnig heimsækjum við stað sem allir leggja reglulega leið sína til eða Endurvinnsluna - eitthvað sem var framandlegt fyrir um þremur áratugum en er eðlilegasti hluti daglegs lífs okkar í dag.
Súrefni er á dagskrá öllu mánudagskvöld Kl.20.30 – 21. Og svo endursýndur.