Eigendur Gamla bíós hafa stefnt eigendum 101 hótels í Reykjavík og krefjast þess að viðbygging hótelsins verði rifin, að viðlögðum dagsektum. Talsmenn hótelsins hafa á móti kvartað til borgaryfirvalda undan hávaða frá samkomuhúsinu áttatíu sinnum. Þetta kom fram í fréttum RÚV um helgina.
Auk þess að stefna hótelinu hafa eigendur Gamla bíós stefnt Reykjavíkurborg til vara, vegna byggingarleyfis hótelsins, sem þeir telja ekki fullnægjandi. Gamla bíó krefst skaðabóta vegna málsins, enda telur félagið að embættismenn borgarinnar hafi ekki farið að lögum þegar þeir heimiluðu að breyta Alþýðuhúsinu í hótel.
Í fyrra skilaði starfshópur um tónlistarborgina Reykjavík tillögum, um hvernig megi efla tónlistarlíf í borginni enn frekar, með þeim samfélags- og efnahagslega ávinningi sem því fylgi. Ein tillagan um stuðning og einfaldað regluverk fyrir tónleikastaði var svohljóðandi:
Færa ábyrgðina yfir á húsnæði í grennd að þau hljóðeinangri ef tónlistin hefur neikvæð áhrif. Þar sem tónleikastaður er fyrir verði það ábyrgð húsbyggjanda/-eigenda í nágrenninu að uppfylla kröfur um hljóðvist í sínum byggingum.