Andrés Jónsson almannatengill segir við Ríkisútvarpið að viðbrögð stjórnenda Hörpu við óánægju vegna málefna þjónustufulltrúa fyrirtækisins séu skólabókardæmi um hvernig fólk bregðist við gagnrýni með vitlausum hætti.
Hann segir að tilkynning þjónustufulltrúa eftir fund með stjórnendum Hörpu, þar sem stór hluti þeirra sagði upp, hafi í raun verið rothögg fyrir stjórnendurna. Ráðamenn í Hörpu hafi svo brugðist vitlaust við í yfirlýsingum sínum og viðtölum. Sem kunnugt er sagði meirihluti þjónustufulltrúa upp störfum eftir að uppgötvaðist að laun forstjórans hefðu hækkað um svipað leyti og þeir voru látnir taka á sig launalækkun.
Andrés vísaði til mikillar umræðu um kjaradóm og mismun á tekjum fólks. Hann sagði að stjórn Harpa hefði lesið vitlaust í stöðuna. „Þegar þessi tilkynning kemur um kvöldið frá þjónustufulltrúum eftir fundinn. Virkilega flott tilkynning, þetta er í raun og veru bara rothögg. Það er búið að setja þig í kjaradómshlutverk. Að fara svo í kolranga átt, og segja bara: gangi ykkur vel, við óskum ykkur velfarnaðar. Að skera niður og það eru bara þeir lægstlaunuðu sem bera þann bagga.“
Fólk fattar oft ekki hvers vegna það sætir gagnrýni, sagði Andrés, og því verði það sig með vitlausum hætti. „Þeim tókst aldrei að útskýra af hverju þessi mynd væri ekki rétt. Meira segja þegar stjórn Hörpu loksins bakkar ætlar hún að fara að skipta um gír, og stjórnarformaður mætir í eitthvert viðtal og ætlar að taka sókn í málinu, og sókn á formann VR og eitthvað. Þetta er komið á glæru hjá mér varðandi kennslubókardæmi.“