Að sögn Sigurðar Más Jónssonar, upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins, verður hópurinn að störfum yfir helgina: \"Mönnum fannst nauðsynlegt að bregðast hratt við og setja saman hóp sem gæti metið það tjón sem þarna hefur orðið og hvernig hægt sé að bregðast við því ástandi sem þarna hefur skapast,“ segir Sigurður við RÚV í dag.
Ráðuneytisstjórarnir munu leiða vinnuna, og kalla til sín þær stofnanir sem lagt geta hönd á plóg. Að sögn Sigurðar liggur ekki fyrir hvort stjórnvöld muni leggja aukið fé að mörkum til að bæta íbúum bæjanna tjón sem veðrið hefur valdið: \"Það er alltof snemmt að segja til um það nú þegar, en eins og hefur komið fram þá blasir við að þarna hefur orðið tjón. Það verður hlutverk viðbragðshópsins að fara yfir hvað sé hægt að gera, hvernig er hægt að bregðast við og greina ástandið þannig að menn geti stutt við það byggðarlag sem þarna er að lenda í hremmingum,“ segir Sigurður.
Rigningarnar hafa valdið vatns- og aurflóðum á svæðinu síðustu daga, og heimamenn jafna ástandinu við náttúruhamfarir. \"Þarna hafa átt sér stað mjög óvenjulegir atburðir. Nauðsynlegt er að bregðast skjótt við, fara yfir stöðuna með okkar lykilstofnunum og meta hugsanleg viðbrögð. Það munum við gera í góðri samvinnu við heimamenn,\" sagði Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra.