Ellen Calmon, formaður Öryrkjabandalagsins segir mikinn sigur að hafa fengið svokallaðan „valkvæðan viðauka“ inn í samninginn um réttindi fatlaðs fólks. Í viðaukanum felst að einstaklingar geta sótt rétt sinn persónulega þyki þeim á sér brotið í ljósi samningsins. Á slíkt hefur reynt á öðrum Norðurlöndum, segir Ellen og viðaukin sé því sannarlega „lifandi“ ákvæði.
Alþingi samþykkti í gær samhljóða þingsályktunartillögu Lilju Alfreðsdóttur utanríkisráðherra um að fullgilda samning Sameinuðu þjóðanna um réttindi fatlaðs fólks. Þá ályktaði Alþingi að hinn valkvæði viðauki skuli taka gildi fyrir lok næsta árs.
Samningurinn felur í sér skyldur aðildarríkja til þess að tryggja réttindi fatlaðs fólks til jafns við aðra. Samningurinn, sem orðinn er um það bil 10 ára gamall, var undirritaður af hálfu íslenska ríkisins árið 2007. Ellen segir að næsta skref sé að löggilda þennan samning. Núna hafi hann áhrif á löggjöf en með löggildingu muni hann bara bein áhrif á lagasetningu.
Um níu prósent þjóðarinnar eru skjólstæðingar Öryrkjabandalagsins, eða um 30 þúsund manns. Innan bandalagsins er 41 aðildarfélag. Samningurinn mun því snerta gríðarlega stóran hóp sem telur sér mismunað vegna fötlunar, t.d. vegna heilbrigðisþjónustu, samgangna, menntunar og margra annarra mála.