Viðar er reiður: „aumleg sýndarmennska. aumlegur áróður“

Viðar Eggertsson leikstjóri, fyrrverandi útvarpsleikhússtjóri og baráttumaður í fremstu víglínu Gráa hersins gagnrýnir Sjálfstæðisflokkinn harðlega. Viðar hefur látið sig málefni eldri borgara varða og vill að fólk temji sér þroskadýrkun í stað æskudýrkunar.

Á vef DV er greint frá því að Viðar er afar ósáttur vegna framsetningu Sjálfstæðisflokksins á efni sem er að finna í bæklingi um kjör eldri borgara og var dreift á heimili landsins. Í bæklingnum er m.a. haldið fram að ráðstöfunartekjur hjóna í lægsta tekjuhópi hafi hækkað um allt að 39% milli áranna 2013 til 2018.

Um þetta segir Viðar:

„Aumleg sýndarmennska. Aumlegur áróður. Sjálfstæðisflokkurinn birtir áróðursmyndir um kjör eldri borgara – án útskýringa – og dreifir á heimili landsins.“

Þá bendir Viðar á eftirfarandi punkta:

Af hverju miða þau við 66 ára aldur, þegar lögboðni eftirlaunaaldurinn er 67 ára?

Hvaða tölur liggja að baki? Ellilífeyrir? Lífeyrissjóðstekjur? Fjármagnstekjur? Atvinnutekjur? Allar tekjur hafa mismunandi skerðingaráhrif á ellilífeyri frá TR

Eru þetta sameiginlegar tekjur hjóna, eða tekjur hvors um sig?

Eru þetta tekjur fyrir eða eftir skatt?

Hér fyrir neðan má sjá síðu úr bæklingi Sjálfstæðisflokksins:

\"\"