Það ætlar lítið lát að verða á vetrarveðri á nýju ári sem heilsar landsmönnum með ofankomu, jafnvel fannfergi um landið, en fjöldi heiða er ófær, þar á meðal Suðurlandsvegur um Sandskeið, en verið var að opna Þrengslin níunda tímanum í morgun.
Þá er var Mosfellsheiði opnuð snemma í morgun, svo og Suðurstrandarvegur. Slæm færð er um mestallt Suðurland, þæfingsfærð víða og sums staðar þungfært en mokstur er hafinn.
Í efri byggðum Reykjavíkur hefur verið illfært í morgun, en snjó kyngdi niður á suðvestanverðu landinu mestan hluta gærdagsins og í nótt.
Vegir eru óðum að verða færir á Vesturlandi, þó er ófært á Fróðárheiði og Útnesvegi á Snæfellsnesi. Éljahraglandi er á Vestfjörðum en vegir vel færir.
Hálkublettir eru á vegum á Norðurlandi vestra, raunar þæfingur á Siglufjarðarvegi en verið að hreinsa. Við Eyjafjörð og í Þingeyjarsýslum er hins vegar víða snjókoma, og snjóþekja eða hálka á flestum vegum.
Þæfingsfærð er á Háreksstaðaleið og Fjarðarheiði en verið að hreinsa. Annars er hálka á flestum vegum á Austurlandi, alveg suður í Öræfi.