Nagdýr og nefúðar

Nagdýr og nefúðar verða til umfjöllunar í þættinum Allt er nú til sem er á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45.

Okkur fannst tilefni til að heimsækja Gæludýr.is á Smáratorgi en nú með því markmiði að fræðast um nagdýr. Dóra gaf sér tíma til að fræða okkur um nagdýrin en hún er með mikla þekkingu á þeim. 

Gæludýr.is er heill heimur af margskonar vörum og fylgihlutum sem dýrin okkar þurfa á að halda ásamt því að vera með starfsmenn í vinnu sem eru fróðir og búnir að afla sér nauðsynlegra upplýsinga þegar viðskiptavinir þurfa á ráðleggingum að halda.

Í þætti kvöldsins verður einnig farið í heimsókn í Ýmus en þar ætlar Frans að segja okkur frá Sterimar nefúðanum. Sterimar er náttúrulegur nefúði sem gerður er úr dauð- hreinsaðri jafngildri sjávarblöndu og hafa franskir háls- nef- og eyrnalæknar mælt með þessum nefúða í um 20 ár.

Þættirnir Allt er nú til eru unnir af sölu- og markaðsdeild Hringbrautar, en þar gefst fyrirtækjum af öllum stærðum og gerðum að kynna vöru sína og þjónustu.

Allt er nú til er eins og fyrr segir á dagskrá Hringbrautar í kvöld kl 18:45,

en hann er í umsjá Díönu Írisar Guðmundsdóttur, [email protected]