Svo stutt er kosningabaráttan að enn vita kjósendur ekki hverju flokkarnir lofa. Þá meina ég að hafa sem kjósandi yfirsýn um hvaða kostir eru í boði. Þeir eru margir flokkarnir. Sumir segja það sama og í fyrra og þá er það bara þannig og þekkt stærð. En svo er margt annað uppi á teningnum.
Traust er orð sem hefur verið mikið talað um og hefur áhrif. Ég býst við að þá sé fólk helst að tala um einstaklinga, foringja frekar en hvað flokkarnir stefna að málefnalega. Umfjöllunin hingað til er afar persónuleg og kannski aðallega um fjármál Bjarna Ben eða að Kata Jak ætli að hækka skatta allra landsmanna.
Í umræðum í dag, þegar rúmar tvær vikur eru til kosninga segja sumir talsmenn flokkanna að stefnan verði skýr á næstu dögum.
Verður þetta kosningabaráttan sem tekur endasprettin – ja, algerlega á síðustu metrum - eins og kannski tveimur dögum fyrir kjörið?