Við vitum af lögbrotum

„Við vitum af skattsvikum, við vitum af undanskotum, við vitum af lögbrotum sem ávallt þarf að fylgjast með og taka á. Svarta hagkerfið er of stórt. Við í þessari ríkisstjórn höfum séð til þess að þessum málum sé sinnt með því að tryggja nægilegar fjárveitingar til þeirra embætta sem þessum verkefnum sinna.“

Þetta sagði Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, á Alþingi í gær þegar hann átti í orðastað við Óttarr Proppé Bjartri framtíð. Óttarr spurði  hvaða aðgerðir hafi verið í gangi og hver sé staða á aðgerðum til að koma í veg fyrir skattundanskot.

Óttarr spurði um kennitöluflakk. „Það eru viss mál sem hafa sérstaklega beinst að einstaklingsrekstri, smærri fyrirtækjum og kennitöluflakki. Ég nefni sem dæmi hnappinn svokallaða sem ætlað er að einfalda öll samskipti fyrirtækja við eftirlitsaðila þar sem gengið er út frá því að þeir sem ekki skila sínu verði afmáðir af skrá og að eftirlitið sé einfaldað og aukið,“ sagði Bjarni.

Og hann hélt áfram. „Kennitöluflakk er ekki bara vandamál út frá skattheimtusjónarhorninu heldur er þetta miklu alvarlegra mál hvað snertir eðlilega og heilbrigða samkeppni. Það er óþolandi fyrir lítinn og meðalstóran rekstur, eða hvaða rekstur sem er ef því er að skipta, að samkeppnisaðilar komist upp með að koma alltaf fram undir nýrri og nýrri kennitölu, skila ekki lögbundnum gjöldum o.s.frv.“

En hvað með skattaskjólin?

„...hvað varðar aflandsfélög þekkja menn að við höfum lagt hér inn ítrekað tillögur, frumvörp, og ég mun á næstu dögum sömuleiðis skila skýrslu um þau mál sem ég boðaði í vor varðandi umfang þeirra mála.“