Bjarkey Gunnarsdóttir, þingmaður Vinstri grænna tjáir sig líka við málið við RÚV og segir það vera siðlaust. Háar bónusgreiðslur eigi ekki rétt á sér. Þær hefðu ekki verið greiddar út hefði verið settur stöðugleikaskattur: \"Þetta með að þeir hefðu greitt í kringum 50 milljarða í stöðugleikaskatt en greiða í þess stað fimm milljarða. Eins og Willum kom inn á þá sýnir það að menn eru að gera þetta á þeirri forsendu, í rauninni, af því þeir eru að verðlauna sig fyrir að ná svona góðum díl við ríkið. Mér finnst það ekki ásættanlegt í nokkurn stað.
Willum segir við RÚV að ákveða verði hvernig lagaumhverfið eigi að vera hér á landi: \"Við erum í alþjóðlegu umhverfi en við þurfum að tryggja í okkar löggjöf hvernig við viljum hafa þetta hér.“
Bjarkey segir að samkvæmt lögum megi greiða 25 prósent af launum í bónusa. Eignaumsýslufélagið ALMC falli hinsvegar ekki undir þetta ákvæði: \"Ég get aldrei fallist á að milljarðar króna séu eðlilegar sem bónusgreiðslur. Þessir menn eru með 46 milljónir í stjórnarsetulaun á ári. Þetta bætist ofan á það. [...] Mér finnst svona svaðalegar bónusgreiðslur ekki eiga rétt á sér. Þetta eru nota bene bara stjórnarsetulaun. Menn eru væntanlega í annarri vinnu,“ segir hún við miðilinn.