„Við verðum því miður að reka hana“

Leikkonan Steinunn Ólína Þorsteinsdóttir flutti þrumuræðu á Austurvelli í dag, en þar var sölunni á Íslandsbanka mótmælt þriðja laugardaginn í röð.

Steinunn dvaldi lengst af við Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra og vísaði í hans eigin orð og sagði „heimskulegt“ að leyfa honum að sitja lengur á ráðherrastóli.

Sökin er þó ekki aðeins Bjarna að mati leikkonunnar, því forsætisráðherra er ekki síður vandamál að hennar mati.

„Vandinn liggur ekkert síður í liðveislu Katrínar Jakobsdóttur sem hefur tekið sér stöðu sem hin meðvirka miðaldra móðir sem reynir að verja það að óknyttastrákar hafi skorið í sundur málverkin, rifið niður gluggatjöldin, hlunnfarið húshjálpina, brotið gluggana, kveikt í fjölskyldualbúminu og pissað í píanóið,“ sagði Steinunn á Austurvelli í dag og lauk ræðu sinni á þessum orðum:

„Hún segir eitt, en meinar annað, við getum ekki lengur treyst henni, við erum hætt að skilja hana – við verðum því miður að reka hana! Og fyrst við erum á annað borð að reka fólk, er rétt að láta Sigurð Inga fjúka líka.“

Steinunn birti ræðu sína á Facebook eftir flutninginn og þar má lesa hana alla.