Við upphaf sláturtíðar

Innanlandssala á kindakjöti gengur vel. Útflutningur hefur hins vegar dregist saman tvö ár í röð. Sagt er að þar sé um að kenna háu gengi íslensku króunnar og lokun markaði bæði í Rússlandi og í Noregi.  

Uppsafnaður birgðavandi á kindakjöti gerir stöðu sauðfjárbænda erfiða.  Markaðráð kindakjöts telur að undanþága frá samkeppnislögum til að markaðssetja íslenskt kindakjöt erlendis. Margir telja slíkt ekki koma til greina.

Fáist undanþága á að vera hægt að minnka birgðir með útflutningi um 35%. Það sem eftir yrði færi á innanlandsmarkað. Stuðningur við íslenska sauðfjárframleiðslu er í formi niðurgreiðslna og útflutningsbóta. Tollar og skattar og innflutningbönn og kvótar koma þessu til viðbótar. 

Talið var að kjötfjallið heyrði sögunni til. Svo er þó ekki.  

 

[email protected]