Súrefni í kvöld: „við þurfum upplýsingabyltingu“

Í Súrefni, þætti um umhverfismál í kvöld verður rætt um orðin í umræðunni um umhverfismál og hvernig rafrænn hugbúnaður sparar pappír og eldsneytisnotkun. Súrefni er í umsjón Lindu Blöndal og Helgu Maríu Guðmundsdóttur.

Orðanotk­un­in í umræðunni um lofts­lags­vána hefur máske verið nokkuð takmörkuð. Víða er nú rætt um að lýsa þurfi því ástandi sem nú er uppi með sterkari orðum. Nú er lagt til að til dæmis nota orð eins og “ham­fara­hlýn­un af manna­völd­um” í stað “loftslagsbreytinga” – eða lofts­lagsneyðarástand, hættu­ástand eða niður­brot. Einnig að tala um hitnun jarðar í stað hlýnun jarðar. Formaður Landverndar hefur sagt að hlýnun jarðar sé aðeins of notalegt orð yfir hamfaraástand.

En hvað segir fólkið sem vinnur með orð? Hvaða mátt hafa orðin og þurfum við fleiri og fjölbreyttari í umræðu um umhverfismálin. Linda Blöndal settist niður með rithöfundunum Kristínu Helgu Gunnarsdóttur og Sindra Freyssyni, sem er einnig ljóðaskáld, á heimili Kristínar Helgu sem telur að við þurfum fyrst og fremst upplýsingabyltingu og að ríkisvaldið þurfi að hafa vit fyrir fólki núna meira en nokkru sinni fyrr.

 

Dk  hugbúnaður hefur verið starfandi í yfir 20 ár og hefur sinnt hundruðum fyrirtækja. Fyrirtæki hefur með tímanum lagt mikla áherslu á að gera allt bókhald rafrænt, með því markmiði að spara pappír og akstur með reikninga út um allar koppa grundir. Helga María Guðmundsdóttir heimstótti Dk og ræddi þar við Dagbjart Pálsson.