Við þurfum meira frjálsræði í verslun

\"Væri það ekki tímasparnaður og bensínsparnaður ef við gætum keypt borðvínin okkar þar sem við kaupum kjötið eða fiskinn.  Okkur er alveg treystandi fyrir þessu frelsi. Við getum keypt skotvopn, eiturefni, sprengiefni og annan hættulegan varning af verslunum sem ríkið er ekkert að skipta sér að.\"

Á þennan veg skrifar Thomas Möller í nýjasta pistli sínum á Hringbraut en þar fagnar hann frjálslyndi í viðskiptum og þeirri þróun sem hefur átt sér stað með hugmyndaríkum kaupmönnum: \"Það fór um mig frelsistilfinning þegar ég var að kaupa hollustuvörur í versluninni Frú Laugu í síðustu viku. Á einu borðinu í búðinni voru nokkrar léttvínstegundir sem var hægt að smakka á. Við hlið glasanna var pöntunarlisti yfir um 30 tegundir af eðalvínum á góðu verði,\" skrifar Thomas.

Og honum finnst frelsið yndislegt: \"Á menningarnótt í Reykjavík var boðið upp á heimabruggaðan bjór ! Um 30 bruggarar mættu í Hljómskálagarðinn og leyfðu gestum og gangandi að prófa framleiðsluna sína. Nokkrir lögreglumenn voru á staðnum en aðhöfðust ekkert. Ótrúleg sjón á Íslandi.\"

Thomas vill ekkert endilega afnema einkasölu ríkisins á áfengi, en slaka megi á klónni: \"Ljóst er að Vínbúðir ÁTVR eru ágætlega vel  reknar verslanir, snyrtilegar og með vel þjálfuðu starfsfólki. En ég gæti séð fyrir mér blandað fyrirkomulag með áframhaldandi rekstri Vínbúðanna samhliða því að matvöruverslanir og “gúrmet” búðir fengju að bjóða viðskiptavinum sínum að kaupa vínið  með matnum,\" skrifar Thomas og spyr hvort það væri ekki tíma- og bensínsparnaður ef fólk gæti keypt borðvínið þar sem það kaupir kjötið og fiskinn.

Og svona til að halda okkur á jörðinni minnir Thomas á það í pistli sínum að andi frjálsræðis svífi víða yfir, en klárlega ekki alls staðar: \"En það var annað hljóð í strokknum þegar ég fór út á Granda um daginn og keypti ítalskan ís í vöffluformi. Ég spurði afgreiðslumanninn af hverju ísinn væri svona dýr. Svarið var að hann væri með verndartolla sem tvöfölduðu verðið.\"

Hann nefnir annað dæmi: \"Í ostabúðinni við hliðina er seldur ostur frá öllum heimshornum. Aftur spurði ég búðarkonuna af hverju osturinn væri svona dýr. Svarið var að hann væri með verndartolla sem tvöfölduðu verðið.\"

Og enn annað: \"Nýlega voru afnumdir verndartollar af hrísmjólk, hnetumjólk og kókosmjólk. Innflytjendurnir voru svo óheppnir að kalla þessa drykki “mjólk”. Þar með voru þeir orðnir ógn við íslenska landbúnaðarkerfið.\"

Og þannig má raunar endalaust upp telja, því miður að mati Thomasar sem býr í landi frjálsræðis, eða hvað?