Við réttum keppinautum peninga

Jón Gerald Sullenberger kaupmaður í Kosti var ómyrkur í máli í þættinum Atvinnulífið sem frumsýndur var fyrr í kvöld. Aðspurður um samkeppnisumhverfið á matvörumarkaði sagði hann enga samkeppni ríkja; einn stór aðili réði ríkjum á íslenska markaðnum með 60-65% markaðshlutdeild sem ekki sé af hinu góða fyrir neytendur. ”Við vinnum hér dag og nótt fyrir viðskiptavini okkar og svo innheimtum við lögbundin lífeyrissjóðsiðgjöld af starfsfólki okkar og greiðum til lífeyrissjóðsins. Hvað gerir hann? Jú hann snýr sér við í stólnum og réttir peningana okkar til keppinautarins. Það er eitthvað ”skakt” við þetta allt saman og ég tel þetta í raun algerlega út í hött” sagði Jón Gerald í þættinum og skírskotaði þar til þeirrar staðreyndar að stærstu eigendur Haga, sem reka m.a. Hagkaup og Bónus eru í eigu lífeyrissjóðs.


Þátturinn Atvinnulífið er á dagskrá Hringbrautar á þriðjudsagskvöldum kl. 21.00