„við leggjum ekki mat á dóminn“

Unnar Jónsson, formaður stjórnar Atvinnuþróunarfélags Eyjafjarðar, segir að stjórn AFE leggi ekki mat á dóm Héraðsdóms í gær þar sem framkvæmdastjóri félagsins var fundinn sekur um brot og dæmdur í 18 mánaða óskilorðsbundið fangelsi.

„Ég held að yfirlýsing okkar í gær endurspegli afstöðu stjórnarinnar allrar, ekki bara minn hug,“ segir Unnar í samtali við Hringbraut.

Spurður hvort það komi nægilega skýrt fram í traustsyfirlýsingu gagnvart Þorvaldi Lúðvík í gær, þar sem fullu trausti er lýst við hann af hálfu stjórnar AFE, að hann hafi sannarlega verið dæmdur sekur og til 18 mánaða fangelsisvistar vegna Stím-málsins, svarar Unnar: „Við leggjum ekki mat á dóminn.“

Spurður hvort þurfi að leggja mat á dóminn, hvort héraðsdómur tali ekki sínu máli sem dómsvald þótt vonir stjórnar AFE standi til sýknu fyrir Hæstarétti síðar, segir Unnar:

„Við leggjum ekki mat á það – en þetta er ekki endanleg niðurstaða.   Við byggjum okkar álit og yfirlýsingu á áliti lögmanns.“

Mikil úlfúð er meðal sumra bæjarbúa og útsvarsgreiðenda á Norðurlandi sem telja að brestur hafi orðið á trúnaði stjórnvalda við almenning. Bent hefur verið á að ekki virðist sama Jón og séra Jón í þessum efnum. Bæjarfulltrúi VG, hefur lýst furðu á yfirlýsingu stjórnar AFE. Bæjarfulltrúinn telur rétt að Þorvaldur Lúðvík fari strax í leyfi.

„Ég geri mér grein fyrir að niðurstaða okkar er ekki sjálfgefin,“ segir Unnar um viðbrögðin.

Spurður hvort orðið hafi trúnaðarbrestur meðal stjórnar og almennings í ljósi yfirlýsingar gærdagsins segist Unnar ekki meta það sem svo. „Okkur fannst rétt að hann nyti vafans uns endanlegur dómur gengur.“

Sigríður Huld Jónsdóttir, bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar á Akureyri, segist ekki hafa kynnt sér yfirlýsingu stjórnarformanns AFE nægilega vel eða málið allt til að geta að svo stöddu myndað sér skoðun á því hvort traustsyfirlýsing stjórnar AFE gagnvart Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, framkvæmdastjóa AFE, orki tvímælis. Unnar Jónsson, formaður stjórnar AFE, kemur úr röðum Samfylkingarinnar á Akureyri.

„Ég hef ósköp lítið kynnt mér þetta, ég hef verið upptekin, ég á erfitt með að tjá mig án þess að hafa skoðað þetta betur, það er erfitt að taka afstöðu án þess að hafa lagst yfir málið,“ segir Sigríður Huld bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í samtali við Hringbraut.

Þorvaldur Lúðvík segist þrátt fyrir 18 mánaða fangelsisdóm vera saklaus.