Sátt um gjald í kerið

Óskar Magnússon setur færslu sína um náttúruperluna Kerið inn á Facebook síðu.

Við Kersmenn skrifa Óskar höldum áfram að byggja upp aðstöðuna jafnt og þétt. Tröppurnar eru mikilvægar og eru þær listasmíð  eftir Pál Trygggvason frá Borg í Grímsnesi. Þær eru úr íslensku lerki sem er sérunnið fyrir Kerið í Kjarnaskógi.

Síðan keyra Kersmennirnir og feðgarnir Þorbjörn og Guðnu nokkur hundruð hjólbörur af rauðamöl í stígana en þeir eru bændur á Miðengi. Rauðmölin er efni staðarins og er hún tekin úr námu í grendini.

Bílastæðið hefur stækkað og unnið er að deiliskipulagi í góðri samvinnu við hreppinn.

Þegar það liggur fyrir eru áform um byggingu á aðstöðuhúsi við Kerið og náðhúsi.

Óskar segir afar ánægjulegt að vinna með heimamönnum að þessari uppbyggingu.

Gjaldtaka hófst árið 2013 og er ferðamenn sáttir við það gjald. 

rtá