Við hvað er ríkisstjórnin hrædd?

"Nýjasta útspil utanríkisráðherrans í samskiptum við Evrópusambandið er með slíkum ólíkindum að undrun sætir," segir í ályktun miðstjórnar Alþýðusambands Íslands í dag sem fjallar um Ísland og Evrópusambandið. Ársfundir sambandsins frá 2008 hafi ítrekað samþykkt að ljúka beri aðildarviðræðum og að aðildarsamningur verði lagður í dóm þjóðarinnar í þjóðaratkvæðagreiðslu. Nú eigi að svíkja margendurtekin loforð.


Miðstjórnin beinir orðum sínum til ráðhera: "Í þeim einbeitta ásetningi sínum að slíta aðildarviðræðum Íslands við ESB hunsaði hann leikreglurnar, hann hunsaði sjálft Alþingi Íslendinga sem hóf þessa vegferð á sínum tíma. Ráðherrann og ríkisstjórnin hunsa líka vilja meirihluta þjóðarinnar sem vill ljúka viðræðum og fá að kjósa um aðildarsamning. Þetta er svo risavaxið álitamál um framtíðarmöguleika okkar þjóðar, að það hlýtur að vera réttmæt krafa að þjóðin sjálf fái að segja sitt álit."


Loks segir í ályktuninni: "Það hlýtur einnig að vera lágmarkskrafa til ráðherra í ríkisstjórn að þeir standi við loforð sem þeir marg endurtóku fyrir kosningar. Við hvað er ríkisstjórnin hrædd? Leyfið fólkinu að segja sitt álit á því hvort aðildarviðræðum við ESB verði framhaldið með þjóðaratkvæðagreiðslu."