Ferðamenn sem bjargað var við Langjökul í nótt óttuðust um líf sitt. Þeir voru allir orðnir mjög kaldir og hraktir. Nicole og Lindsey Smith voru í ferðinni en þau tjáðu sig við RÚV.
„Við komum í íshellinn klukkan tvö. Mér skilst að björgunarsveitin hafi verið kölluð út klukkan fjögur. Fyrstu viðbragðsaðilar komu á staðinn um níuleytið. Þá settumst inn í bíl. Hann var líklega fyrir 14 eða 15 manns. Við vorum 24 talsins og miðstöðin í bílnum var biluð,“ sagði Nicole.
Ekki var pláss fyrir alla í bílum frá ferðaþjónustufyrirtækinu þegar þeir komu loks á vettvang og unga fólkið skiptist þá á að vera fyrir utan. Þau höfðu hvorki mat né drykk í um 15 klukkustundir. Nicole sagði:
„Við skýldum okkur á bak við snjósleðana í fimm tíma sem var óhugnanlegt. Við héldum öll að við myndum deyja þarna.“